BYD - Rafbílar byggðir á áratuga reynslu af rafhlöðum
BYD er kannski tiltölulega nýtt nafn á íslenskum bílamarkaði, en fyrirtækið sjálft er langt frá því að vera nýtt af nálinni.
BYD var stofnað árið 1995 sem rafhlöðufyrirtæki og hóf bílaframleiðslu árið 2003. Það er einmitt þar sem sagan verður áhugaverð. Í stað þess að byrja sem hefðbundinn bílaframleiðandi og bæta rafmagnstækni við síðar, kom BYD inn í bílaiðnaðinn með áralanga reynslu af rafhlöðum, rafeindatækni og orkustýringu.
Í dag er BYD orðið einn stærsti framleiðandi raf- og tengiltvinnbíla í heiminum. Árið 2025 seldi fyrirtækið um 4,6 milljónir bíla og BYD-bílar eru nú seldir á fjölmörgum mörkuðum um allan heim.
Það sem gerir BYD öðruvísi
Það er auðvelt að setja öll ný kínversk bílamerki undir sama hatt. En BYD stendur að mörgu leyti öðruvísi að vígi.
Fyrirtækið þróar sjálft stóran hluta þeirrar tækni sem skiptir mestu máli í rafbíl: rafhlöður, rafmótora, aflstýringu, hugbúnað og rafeindabúnað. Þetta gefur BYD meiri stjórn á bæði þróun og framleiðslu en hjá mörgum framleiðendum sem kaupa stóran hluta lykilíhluta frá öðrum. Það er líka ein ástæðan fyrir því að BYD getur boðið mikinn búnað og mikla tækni fyrir verðið án þess að bíllinn þurfi að vera „ódýri kosturinn“.
Blade Battery – hjartað í BYD
Rafhlaðan er líklega það sem BYD er þekktast fyrir.
Blade Battery er LFP-rafhlaða sem BYD hefur þróað sjálft með áherslu á öryggi, endingu og hitastöðugleika. Í nýjustu bílunum er rafhlaðan jafnvel samþætt inn í burðarvirki bílsins með svokallaðri Cell-to-Body tækni. Það hjálpar til við að auka stífleika yfirbyggingarinnar, nýta pláss betur og halda þyngdarpunktinum neðar.
Þetta er mikilvægt atriði fyrir okkur. Þegar við seljum rafbíl viljum við ekki bara vita hversu stór skjárinn er eða hversu hratt hann fer í hundraðið. Við viljum vita hvað er undir honum og hver stendur á bak við tæknina.
BYD e-Platform 3.0 var þróað sérstaklega fyrir rafbíla. Þar vinna rafhlaðan, rafmótorarnir, aflstýringin og yfirbyggingin saman sem eitt kerfi í stað þess að rafdrif sé sett inn í grunn sem upphaflega var hannaður fyrir bensín- eða dísilbíl. Kerfið styður meðal annars fram-, aftur- og fjórhjóladrif auk 400 og 800 volta rafkerfa.
Útkoman sést vel í bílunum sjálfum: gott innanrými, öflugir rafmótorar, mikil staðalútbúnaður og sífellt hraðari hleðsla.
Af hverju BYD hjá Bílasölu Akureyrar?
Í júní 2026 hófum við sölu á BYD hjá Bílasölu Akureyrar.
Við höfum selt bíla á Akureyri í yfir 30 ár og ákvörðunin um að bæta við nýju merki ekki tekin í flýti.
Það sem vakti áhuga okkar á BYD var ekki bara verðið. Það var útlitið, tæknin á bak við bílana, reynslan af rafhlöðum, stærð framleiðandans og hversu mikill hluti af BYD er undir þeirra eigin framleiðslulínu. Í BYD-línunni eru meðal annars fjórhjóladrifnir fjölskyldubílar, kröftugir rafbílar, rúmgóðir sjö manna bílar og minni bílar fyrir daglegan akstur. Varmadælur, góð drægni og öflug rafhlaða gera úrvalið sérstaklega áhugavert fyrir íslenskar aðstæður.
Bílarnir þurfa svo auðvitað að standast norðlenskar kröfur! Það má því segja að BYD tékkar í öll boxin.
Komdu og prófaðu sjálf/ur!
Við getum sagt þér ýmislegt um BYD. Besta leiðin er samt að kíkja í heimsókn til okkar og fá að prófa 😉
Kynntu þér bílana
BYD DOLPHIN
Lítill að utan. Ótrúlega rúmgóður að innan.
Dolphin er lipur og vel búinn rafbíll sem hentar einstaklega vel í daglegan akstur. Þrátt fyrir nettar ytri stærðir býður hann upp á gott innanrými, öflugan rafmótor og drægni sem dugar vel bæði innanbæjar og í lengri ferðir.
- WLTP drægni
- 427 km
- Framhjóladrif
- 203 hö
- Lengd
- 4,29 m
- Breidd
- 1,77 m
- 0–100 km/klst.
- 7,0 sek.
BYD SEAL
Sportlegur rafbíll sem er jafn skemmtilegur að keyra og hann er að horfa á.
Seal sameinar lága og sportlega akstursstöðu við mikið afl, fjórhjóladrif og rúmgóða farþegarýmið. Með 530 hestöflum og hröðun upp í 100 km/klst. á aðeins 3,8 sekúndum er Seal einn af kraftmestu bílunum í BYD-línunni.
- WLTP drægni
- 520 km
- Fjórhjóladrif
- 530 hö
- Lengd
- 4,80 m
- Breidd
- 1,88 m
- 0–100 km/klst.
- 3,8 sek.
BYD EVO AWD
Kompakt jeppi með tölur sem koma á óvart.
EVO er rúmgóður og kraftmikill fjórhjóladrifinn rafbíll sem sameinar 449 hestöfl, góða drægni og hraðhleðslu. Sterkur alhliða bíll fyrir íslenskar aðstæður — hvort sem ferðinni er heitið í vinnuna, upp í fjall eða út á land.
- WLTP drægni
- 470 km
- Fjórhjóladrif
- 449 hö
- DC hraðhleðsla
- 220 kW
- 0–100 km/klst.
- 3,9 sek.
- Dráttargeta
- 1.500 kg
BYD SEALION 7
Stór rafmagnsjeppi með sportlegt DNA.
Sealion 7 er fyrir þá sem vilja rými og þægindi jeppa án þess að fórna afli eða akstursánægju. Langt hjólhaf, rúmgott farþegarými og 530 hestafla fjórhjóladrif gera hann að einum mest spennandi bíl BYD-línunnar.
- WLTP drægni
- 502 km
- Fjórhjóladrif
- 530 hö
- Lengd
- 4,83 m
- Breidd
- 1,93 m
- 0–100 km/klst.
- 4,5 sek.
BYD TANG
Sjö sæti. Fjórhjóladrif. Engar málamiðlanir.
Tang er stærsti fjölskyldubíllinn í BYD-línunni. Sjö sæti, mikil drægni og öflugt fjórhjóladrif gera hann sérstaklega áhugaverðan fyrir fjölskyldur sem þurfa alvöru pláss — en vilja samt rafbíl með miklu afli og ríkulegum búnaði.
- WLTP drægni
- 530 km
- Fjórhjóladrif
- 517 hö
- Fullbúinn fjölskyldubíll
- 7 sæti
- Lengd
- 4,97 m
- Breidd
- 1,96 m
Bóka reynsluakstur
Skildu eftir upplýsingar og við höfum samband við þig til að finna hentugan tíma. Fylla þarf út alla reiti.